Verum til taks ef einhver þarf á okkur að halda, það á ekki að þurfa að greiða það dýrum dómi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2009 | 10:22
Hvernig dettur þér í hug að ....
það séu ekki afleiðingar gerða þinnar.
Lögmáli segir að það sem að þú gerir hafi alltaf afleiðingar, sama hvort það séu slæmar eða góða afleiðingar.
Mikið er talað um þessa dagana að þessi og þessi hafi gert þetta og hitt og það hafi þau keðjuverkandi áhrif að fleiri dragast inn í þá hringrás. Er það eitthvað lögmál!
Þegar einstaklingur brýtur af sér gagnvart samfélaginu á einn eða annan hátt, verður hann að taka út sína refsingu, sama hvar hann er staddur i heiminum. Það sem að ég er að segja er að mér þykir skrítið ef að við séum að flytja heim að utan fólk sem að brotið herur af sér í erlendum fangelsum, til þess að taka út dóm sinn hérna á landi. Hversu góð skilaboð eru það til afbrotamanna?
Þú veist það áður enn þú brýtur af þér að ef þú næst áttu augljóslega eftir að taka út refsingu þína í þar til gerðu landi sem brotið var framið í! Hver veit þetta ekki?
Aðbúnaður hérna heima má örugglega líkja við 5 stjörnu hóteli miða við í mörgum öðrum löndum. Hver vill ekki fá að sitja af sér dóma hérna heima!
Því miður eru það samt sem áður ekki eingöngu þeir sem fremja brotin sem að eiga erfitt með að taka því sem að höndum ber þegar þessi staða kemur upp. Þessir einstaklingar eiga fjölskyldur, sumir börn og aðrir eiginkonu, börn og foreldra. Þetta vegur þyngst á þeim, það held ég að sé alveg augljóst. Hvað er til ráða þegar svona staða kemur upp, fyrir aðstandann? Eðlileg viðbrögð væru að gera allt til þess að koma einstaklingnum til bjargar hvað sem það kostar. Allavega myndi ég gera það ef barnið mitt myndi reka sig svo hressilega á í lífinu.
Ef hægt er að flytja brotamenn/konur til landsins og láta þá/þær taka út refsinguna hérna heima, myndi ég vilja sjá þetta fólk þurfa að taka refsinguna út að hluta í samfélagsþjónustu sem snýr að því er brotið gæti haf áhrif á. Td. þeir sem flytja inn eiturlyf, þeir ættu að þurfa að taka út refsingu eftir fangelsisdóm í samfélagsþjónustu hjá félagasamtömum tengdum því er viðkemur aðstoð fólks sem lent hefur í klóm eiturlyfja. Hluti af launum brota-fólks ætti að renna til stofnanna tengd brotum hverju sinni.
Það þyrfti svo að vega og meta hversu lengi og hversu mikið af launum fólks færi í tiltekin málaflokk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2009 | 15:23
Þá eru 18 bræðurnir búnir... og komið gott veður
Það er komin sól og fallegt veður hérna á Akureyri. Eins og við manninn mælt þá byrjar blíðan í dag sunnudag eftir 18 slæma daga..... Vonandi heldur snjórinn samt sem áður. Það er mikið bjartara þegar snjórinn er í fjöllunum og allt í kring.
Það hlýtur að koma gott sumar , ef að miðað er við hversu harður veturinn hefur verið. Allavega er það von mín að svo verði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.12.2008 | 15:57
Hefur þörfin minkað svona mikið!!
Hvernig er þetta allt að verða. Er ekki lengur þörf fyrir þessa þjónustu lengur? Ég væri nú glöð ef að svo væri. En þetta er alveg út í hött að fara í lokanir að þessu tagi eins og ástandið er í þjóðfélaginu núna. Er þetta ekki akkúrat það sem að við þurfum að hafa í lagi, þjónusta á geðsviði. Hvar er hægt að skera niður frekar en á þessu sviði? Það er nú það. Verður þessu fólki ekki veitt nein þjónusta af neinu tagi, eða hver er hugmyndin með að greiða úr þörfum þessa hóps fólks? Hvar eru lausnirnar á móts við vandann? Ég held að við séum að kalla yfir okkur mikin vanda með þessari lokun. Þetta á eftir að kosta okkur eflaust meira en bara niðurskurð á þessari deild. Mér þykri alltaf verið farið af stað með lokanir án þess að huga að afleiðingum og hvernig á þá að takast á við afleiðingarnar. Eru ráðamenn að gera sér grein fyrir afleiðingum á lokunum að þessu tagi. Sjáið dæmi um lokun skurðdeildar í Keflavík, hvernig væri það ef að lokað yrði skurðdeild á Landsspítalanum, hvaða afleiðingar myndi það hafa fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins? Er líf fólks á landsbyggðinni minna virði en þeirra í höfuðborginni. Þetta er mér óskiljanlegt. Þó að ég viti að það sé verið að skera niður þar líka, þá geta þeir ekki leyft sér að loka svo mikið, eins og þeir eru að gera úti á landi.
Ég er vægast sagt mjög uggandi yfir þessu og ég óska engum þess að þurfa á þessari aðstoð að halda og fá hana ekki. Og ekki öfunda ég þá sem að þurfa að taka þessar erfiðu ákvarðanir.
|
Uppsagnir á geðdeild FSA |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2008 | 21:56
Rok, ég gæti kanski nýtt mér það og sent jólakortin með vindinum..... gleymdi nefninlega að setja jólakort til USA í póstinn.
Þetta er svona tipikal gleymska þegar maður er komin á þennan aldur er mér sagt. Ég sel það ekki dýrara en ég keypti það. Held að þetta sé allt í lagi á meðan ég gleymi ekki að taka upp jólapakkana
Þá er fyrsti skeggjaði karlinn að koma til byggða, ég sem að hélt að þetta væri bara gabb. En ég sá þá í sjónvarpinu svo að ég verð víst að trúa því að þeir séu til. Sjónvarpið lýgur aldrei.
Mikið hlakka ég til að byrja að brytja niður grænmetið í jólasúpuna. Oh hún er svo góðððð. Þetta er hefð komin frá föður ömmu minni, alveg tær snild. Enda hef ég aldrei slept því að hafa hana á aðfangadag síðan ég fór sjálf að búa. Uppskriftina fékk hún hjá konu frá Ameríku fyrir fjölda árum síðan. Og hefur þessi frábæra súpa fylgt okkur systkynunum og er hún ennþá elduð heima hjá systrum mínum og móður.
Svo þarf að gera jólaísinn, það má ekki klikka heldur. Það er ís uppskrift frá föður ömmu líka. Blessuð sé minning hennar. Ekki má gleyma að alltaf er soðið niður rauðkál sem að ég vandist hjá henni líka. Þannig að allarg gömlu hefðir ömmu varð veitast með okkur.
Best að fara að setja jólasokkinn á sinn stað, veit að ég fæ eitthvað í sokkinn, ég er búin að vera svo STILT!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)




ollana
astarut
ronja06
hugs
eydish
palmig
heida
steindora
ebbaloa
gretarmar
ellyarmanns
dofri
gurrihar
omarragnarsson
sigurdurkari
sasudurnesjum
asdisran
svavaralfred
ea
vertu
margretsverris
siggileelewis
hreinsamviska
godsamskipti
brandarar







