5.10.2010 | 09:15
Get ekki setið á mér lengur! Hroki og aftur hroki á þingi!
Þegar maður les um fólk sem hefur tekið sitt eigið líf vegna þess að það sér ekki neina framtíð. Þegar fólk er að framkomið skiptir ekki neinu máli hvort einstaklingurinn sé sonur/dóttir, faðir/móðir einhvers. Þegar fólk fær nóg af lífinu er það ekki að hugsa um fólkið í kringum sig. Hvernig á annað að vera? Þetta er dapurt en staðreynd. Ég er eiginlega í losti eftir að fletta blöðunum í dag og sjá hvað er að gerast í þjóðfélaginu okkar.
Ég er ekki vön að nenna að sitja við imbann og hlusta á pólitíkusa blaðra hvern ofaní annann. En ég gerði það í gær. Eitt skil ég ekki og það er þegar pólitíkusar eins og Bjarni B. lætur, það er eins og Sjálfstæðismenn hafi ekki fengið að koma að neinu því sem hefur verið til umræðu á þingi. Sorry ég bara verð svo reið þegar svona stráklingur reynir að setja ofaní fólk en kemur ekki með neina lausn. Allir eru þingmenn tilbúnir að rakka niður hvorn annan en aldrei heyrist hver lausnin sé. Hverjir voru við stjórnvöld þegar og áður en kreppan skall á? Viljum við fá glæpamennina þá aftur til valda? Ekki ég allavega.
Er ekki komin tími til að þingmenn þessara lands fái að vita hvað það sé að vera atvinnulaus? Þegar fólk hefur ekki reynt á eigin skinni hvernig það sé að missa vinnuna og svo húsið, svo bílinn, svo virðinguna fyrir sjálfum sér og öðrum. Hvað er þá eftir?
Það er ekki til neitt sem heitir samkennd með þessu fólki sem á að hafa gætur á landsmönnum og hag fólksins í landinu.
Núna á að selja allt sem hægt er að selja, og hverjir eru kaupendur? Það skyldi þó ekki vera auðvaldar þessa lands eins og oftar en ekki. Þeir eru meira að segja að hvetja erlenda fjárfesta til að kaupa íbúðir, bíla og fyrirtæki í stórum stíl á spott prís! Hvað er eðlilegt við það?´
Mælirinn minn er löngu fullur, ég hef þurft að horfa uppá margt sem þykir miður og alltaf er það þannig að ef þú átt nóg af peningum þá getur þú stjórnað ýmsu, þetta er það sem ég kalla spillingu í hæstu hæðum. Ég hef heyrt mann segja við annann: þú kippir bara í spottann er það ekki? Og viti menn það var gert nema hvað, því það eru aðeins auðmenn sem geta leyft sér svona nokkuð. En þessir einstaklingar vinna á bak við tjöldin og eru aldrei í framlínunni og því fáum við ekki að vita hverjir þetta eru. Er ekki komin tími til að setja nýjar reglur í kerfið til þess að kerfis karlarnir geti ekki fest sig of vel í sessi og síður verði spilling?
Hvað um að þingmaður megi bara starfa á þingi í mestalagi í 4 ár? Og svo verður hann bara að fara á hinn almenna vinnumarkað til þess að tapa ekki innsæi sínu á hvað sé rétt og hvað sé rangt?
Einnig fólk í æðstu stöðum bankanna og fleiri stofnana ættu ekki að fá að sitja þar nema í 6 ár í mestalagi, því að ef þeir geta búið til sitt eigið far í stólinn þá er alveg ljóst að þeir sinna áfram erindi þeirra sem eiga peningana og fara undan í flæmingi þegar kemur að ´þessu venjulega fólki sem á bara venjuleg hús, venjulegan bíl og venjulegar tekjur!
Það er eins og engan megi styggja, og afhverju ætli það sé? Völd geta reynst hættuleg hættulegu fólki, við erum aldeilis að súpa seiðið af því núna.
Núna tala þingmenn um að við eigum þessar líka fínu auðlyndir, sem er allt gott og blessað. Nema hvað þeir eru búnir að selja alla gullkálfa landsins og vilja selja restina til erlendra fjárfesta. Ég skil ekki alveg hverjum það sé í hag að selja allt sem ríkið hefur átt. Við fólkið í landinu eru ríkið, en það virðist gleymast þegar peningar eru annars vegar. Hugsið ykkur á tímum sem þessum hvað hefði verið hægt að auðvelda landanum ef ríkið hefði átt þau fyrirtæki og eignir sem það átti fyrir nokkrum árum síðan, en voru einkavædd. Og hverjir voru þetta sem fengu á silfurfati eignir ríkisins? Og hverju hefur þetta skilað okkur í dag? Ætlar sama sagan að endurtaka sig, að þeir sem hafa komið peningum undan fái nú að kaupa á silfurfati eignir sem ríkið hefur tekið yfir? Og í sumum tilfellum eftir geðþótta ákvörðun þá fá þeir sömu og settu í þrot fyrirtæki að kaupa þau aftur. Allt svona er þaggað niður.
Lifið HEIL!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.5.2010 | 16:35
Sól og blíða, en köld gola.
Það er að verða léttar yfir öllu og öllum þar sem sólin er farin að skína. Það eru greinilega góð vítamín í sólinni, sem hressir sálina. Hugur fólks og hugafar virðist breytast með hækkandi sól.
Núna ætti að vera rétti tíminn til að hugsa jákvætt og finna jafnvægið í heild sinni. Sólin er það sem að lyftir manni en golan er það sem heldur manni í jafnvægi til að gleyma ekki því að það er líka til kuldi í kringum mann. Í kuldanum þá er gott að hafa il til að ylja öðrum sem á þurfa að halda.
Afstaðin helgi er búin að vera hreint afbragðs góð, en með þoku sem lét sjá sig í gær en svo létti auðvitað til. Þetta er bara sama mynstur með veður og líðan fólks oft á tíðum. En það birtir upp um síðir. Látum sumarið verða okkur gott og njótum þess góða í lífi okkar og því góða sem aðrir hafa uppá að bjóða. Vonandi verður sumarið þér/ykkur gott.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Verum til taks ef einhver þarf á okkur að halda, það á ekki að þurfa að greiða það dýrum dómi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2009 | 10:22
Hvernig dettur þér í hug að ....
það séu ekki afleiðingar gerða þinnar.
Lögmáli segir að það sem að þú gerir hafi alltaf afleiðingar, sama hvort það séu slæmar eða góða afleiðingar.
Mikið er talað um þessa dagana að þessi og þessi hafi gert þetta og hitt og það hafi þau keðjuverkandi áhrif að fleiri dragast inn í þá hringrás. Er það eitthvað lögmál!
Þegar einstaklingur brýtur af sér gagnvart samfélaginu á einn eða annan hátt, verður hann að taka út sína refsingu, sama hvar hann er staddur i heiminum. Það sem að ég er að segja er að mér þykir skrítið ef að við séum að flytja heim að utan fólk sem að brotið herur af sér í erlendum fangelsum, til þess að taka út dóm sinn hérna á landi. Hversu góð skilaboð eru það til afbrotamanna?
Þú veist það áður enn þú brýtur af þér að ef þú næst áttu augljóslega eftir að taka út refsingu þína í þar til gerðu landi sem brotið var framið í! Hver veit þetta ekki?
Aðbúnaður hérna heima má örugglega líkja við 5 stjörnu hóteli miða við í mörgum öðrum löndum. Hver vill ekki fá að sitja af sér dóma hérna heima!
Því miður eru það samt sem áður ekki eingöngu þeir sem fremja brotin sem að eiga erfitt með að taka því sem að höndum ber þegar þessi staða kemur upp. Þessir einstaklingar eiga fjölskyldur, sumir börn og aðrir eiginkonu, börn og foreldra. Þetta vegur þyngst á þeim, það held ég að sé alveg augljóst. Hvað er til ráða þegar svona staða kemur upp, fyrir aðstandann? Eðlileg viðbrögð væru að gera allt til þess að koma einstaklingnum til bjargar hvað sem það kostar. Allavega myndi ég gera það ef barnið mitt myndi reka sig svo hressilega á í lífinu.
Ef hægt er að flytja brotamenn/konur til landsins og láta þá/þær taka út refsinguna hérna heima, myndi ég vilja sjá þetta fólk þurfa að taka refsinguna út að hluta í samfélagsþjónustu sem snýr að því er brotið gæti haf áhrif á. Td. þeir sem flytja inn eiturlyf, þeir ættu að þurfa að taka út refsingu eftir fangelsisdóm í samfélagsþjónustu hjá félagasamtömum tengdum því er viðkemur aðstoð fólks sem lent hefur í klóm eiturlyfja. Hluti af launum brota-fólks ætti að renna til stofnanna tengd brotum hverju sinni.
Það þyrfti svo að vega og meta hversu lengi og hversu mikið af launum fólks færi í tiltekin málaflokk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2009 | 15:23
Þá eru 18 bræðurnir búnir... og komið gott veður
Það er komin sól og fallegt veður hérna á Akureyri. Eins og við manninn mælt þá byrjar blíðan í dag sunnudag eftir 18 slæma daga..... Vonandi heldur snjórinn samt sem áður. Það er mikið bjartara þegar snjórinn er í fjöllunum og allt í kring.
Það hlýtur að koma gott sumar , ef að miðað er við hversu harður veturinn hefur verið. Allavega er það von mín að svo verði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)