13.5.2007 | 15:23
Þá eru kosningar að baki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2007 | 11:48
Nýjasti meðlimur fjölskyldunnar 5 ættliðurinn
Nýjasti meðlimur fjölskyldunnar fæddist 3 maí síðastliðin. Og var það drengur. Hann var einar 15 merkur og 51 cm. Er hann fyrsta ömmu og afa barn, langömmu og langaga barn svo og langalangafa barn. Þannig að það eru komnir einir 5 ættliði hjá okkur. Og er hann afi minn, sem sé langalangafi drengsins er 87 ára að aldri, fæddur 1920.
Langalangafi fæddur 18-11-1920 Afi fæddur 22-01-1948 Amma fædd 03-12-1968 mamma fædd 24-01-1987
Þess má geta að sá stutti er einnig fæddu á afmælisdegi móður systur sinnar hennar Hilda Freyju fædd 3 maí 1992.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.5.2007 | 18:30
Hvar eru þín lífsgildi í samræmi við stjórnmálaflokkana, ég set hérna inn niðurstöðurnar mínar, endilega skoðið þetta!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2007 | 18:22
TAKTU TEST OG SJÁÐU HVAÐA FLOKK ÞÚ VELUR
Hérna er linkur
Mín niðurstaða er þessi
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 37.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 30%
Stuðningur við Samfylkinguna: 12.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 37%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 30%
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.5.2007 | 16:48
Sjálfstæðisfólk. Er það mottóið í dag að fara í grænt....
Ég er ekki að skilja þessa afstöðu hjá fólki. Á vegi mínum síðustu 2 daga hef ég hitt fólk sem að hefur kosið Sjálfstæðisflokkinn undanfarið í kosningum. En viti menn þeir ætla að kjósa framsókn, og af hverju ??? Jú... til að geta haldið áfram með þeim í meirihluta. HALLÓ er ekki allt í grænum hjá þeim.
Það gefur að skilja að ef þetta er hugarfarið þá er nokkuð ljóst að að þeir bláu verði að lúta fyrir þeim grænu.
Sjálf er ég flokksbundinn og hef verið í allnokkur ár, en ætli ég fari ekki að endurskoða það hér með.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það hefur verið gaman að fylgjast með umræðum í ríkinu undanfarið. Ekki svo að skilja að ég sé nokkuð að skilja allt sem að þarf kemur fram, þar sem að sumir flokkarnir eru með eina stefnu þennan daginn og svo aðra næsta dag. Þetta má kalla umhleypingasama flokka.
Eitthvað hefur mér þótt vanta umræðu um bændastéttina. Aðeins var einn aðili sem að ég hef heyrt í enn sem komið er taka eitt stökk og talaði út frá hjarta bóndans. Sem gefur að skilja þá halda ansi margir í okkar líka sæmilega landi að bóndinn sé að fá greiddar nánast allar þær krónur sem að varan selst á úti í búð. En svo er ekki og þarna vantar að upplýsa samfélagði okkar um hver er að græða á landbúnaðinum. En það er nokkuð ljóst að það eru verslanir sem að fá stóran skerf af kökunni, en bóndinn fær minnst. Ýmindið ykkur að reka gott fjárbú, kosta til fóðurs, lyfjakostnaður, vinnsla á heyi svo og tækja notkun vinnu stundir. Hvað ætli sé verið að leggja út í kostnað án þess að fá nema lítið brot til baka. Af þessu má lesa að litlir sauðfjárbændur geta ekki rekið bú nema að vinna með þeim. Ég held að það þurfi að endurskoða það hver á að fá mest út úr því sem að hann er að gera. Þá verslunarmaðurinn sem að getur lagt eins og honum nánast þóknast á vöruna. Bóndinn sem að hefur mest lítið um þetta að segja, en þarf að leggja óskaplega mikla vinnu á sig til að framleiða gott kjöt. Dæmi hver fyrir sig. En það vantar upplýsingar til almennings í landinu sem að trúir því statt og stöðugt að það sé bóndanum að kenna að verð sé svo og svo hátt í verslunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)