Kæru Íslendingar núna er stóra stundin að renna í hlaðið

Er Davíð virkilega ekki búinn að sjá að sér. Eða blessaða ríkistjórnin. Við höfum þurft að bíða í marga, marga daga eftir að fá að vita örlög okkar í stórum, stórum dráttum. Eru þið viss um að þetta sé rétt ákvörðun kæru stjórnendur þessa lands, að taka við aurum frá Bretum og ganga að skilmálum IMF? Hver eru rök ykkar eiginlega. Afhverju er allt unnið með leynd? Verða sakamenn landsins sóttir til saka eða ekki? Hvar eru svörin mín eiginlega.

 

Kæru stjórnvöld mynduð þið vilja vera svo væn að segja Davíð Oddssyni upp störfum og fara svo frá völdum. Þetta er ekki að ganga hjá ykkur.


Kolkrabbinn ?

Hversu langt mun IMF ganga til að koma skipulagi á íslenska fjármála óreiðu. Fylgir því einhverjar kvaðir um að skoðað verði hverjir  hafa staði fyrir áralangri hefð íslenskra stjórnmálaflokka um hverjir stjórni því hverjum má selja eignir ríkisins og hverjir hafa verið að hagnast til margra ára í boði stjórnmálaflokkanna. Hverjir eru smeykir við að sannleikurinn komi í ljós? Hversu djúpt eigum við að skoða stöðu okkar?

Hverjir þurfa að vera smeykir ef svo ætti að vera?

Kanski er þetta bara einn enn draumurinn sem að mig dreymdi eða hvað.

Er kolkrabbinn fallinn eins og margir hafa haldi fram? Fækkaði ekki bara öngum hans og lagðist á færri hendur en áður var?

Þegar talað er um að Ísland sé með minnst spilltu löndum í heimi langar mig að hitta það fólk sem að telur svo vera, hvar er hægt að fá svona upplýsingar og hvernig er þetta mælt eiginlega? Er notuð gamla góða reglustikan eða hvað!

Margur Íslendingurinn veit betur, en við erum svo smá að við þorum ekki að standa upp og segja skoðun okkar og segja frá sem að við vitum eða það sem að við teljum okkur vita af hræðslu við Stóra skrímslið. Margt hefur komið mér mjög svo á óvart undanfarin ár. Ég hef búið í minni kaupstað og svo núna stærri kaupstað. Og viti menn alstaðar sé ég spillingu. Spillingu er alstaðar að finna, vá ekki getum við verið svo blind að við sjáum það ekki. Þetta snýst mest um bæjarpólitík og hverjir eru velunnarar sitjandi bæjarstjórnar. Kom on þetta veit hvert mannsbarn. Afhverju ætti þá ekki að vera sama að segja um stjórnmálaflokkana sem að stjórna landi og þjóð í það og það skiptið.

Er ekki komin tími til að fá fólk í æðri stöður landsins, sem að getur kyngt stolti sínu og beðið um aðstoð fagfólks erlendis frá þegar á þarf að halda?

Kæri lesandi kanski eru þetta hörð orð, en kanski opnast fyrir eitthvað sem að engin hefur þorað að tala um áður. Sjáum til.


Eru þeir öryggir í heimalandinu?

Ég held að ég myndi ekki láta sjá mig í mínu eigin heimalandi ef að ég myndi lenda í þeirra stöðu. Við íslendingar verðum að taka okkur taki og mynda samstöðu um það hvort að við viljum virkilega hafa stjórnendur þessa lands við stjórnvölin áfram. Ég tek unir orð Hallgríms Helgasonar sem að koma í þáttinn hjá Agli. Þar segir hann meðal annars, að það á ekki að taka einhvern og leggja hann í einelti heldur taka heildina og láta hana svara til saka fyrir það sem að á okkur hefur verið lagt. Hver er ánægður með að taka afleiðingum gjörða þessara aðila? EKKI ÉG! Langar þig kæri landsmaður til að klappa á bakið á þessu fólki og segja, æ æ  þetta lagast! Og svo er það auðvitað stóra spurningin, hvar er hægt að ná í þetta velgjörðar fólk?

Farið hefði fé betur!


mbl.is Ást á milljarðamæringum kulnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

20 týpur á karlaklósettinu (tekið af Víkurfrétta vefnum)

 

 piss

Hér koma 20 tegundir karla sem þú finnur á karlaklósettinu…



SKAPBRÁÐUR: Hefur farið í nærbuxurnar öfugar, finnur ekki klaufina - rífur buxurnar...



FÉLAGSLYNDUR: Pissar með vinum sínum hvort sem honum er mál eða ekki...



RANGEYGÐUR: Horfir til hinnar skálarinnar til að sjá hvernig hinn náunginn er útbúinn...



HLÉDRÆGUR: Getur ekki ef annar er að horfa, skolar niður og kemur aftur seinna...



KÆRULAUS: Allar skálar uppteknar pissar í vaskinn...



SNIÐUGUR: Heldur ekkert, lagar bindið, horfir í kringum sig, pissar venjulega á gólfið...



ÁHYGGJUFULLUR: Er ekki viss um hvar hann hefur verið undanfarið, gerir skyndikönnun...



MONTINN:Beinir bununni á móti straumnum, þvers og kruss um skálina, reynir að hitta flugu...



UTAN VIÐ SIG: Hneppir frá vestinu, tekur út bindið, pissar í buxurnar...



BARNALEGUR: Bunar beint í botn skálarinnar finnst gaman að sjá freyða...



LAUMULEGUR: Prumpar hljóðlega á meðan hann pissa, lítur sakleysislega úr, veit að náunginn við næstu skál verður kennt um...



ÞOLINMÓÐUR:Stendur lengi kyrr og bíður, les með lausu hendinni...



BRÁÐLÁTUR: Bíður í langri röð, gnístir tönnum, pissar í buxurnar...



KALDUR KALL: Slær tólinu í skálarbarmana til að hrista af því...



HAGSÝNN: Bíður þar til hann þarf að gera meira, sameinar hvoru tveggja...



FEITUR: Bakkar frá skálinni, bunar í blindi, hittir í skóinn...



LÍTILL: Stendur upp á kassa, dettur í skálina og drukknar...



FULLUR: Tekur vinstri þumalfingur á hægri hendi, pissar í buxurnar...



ÓÞOLINMÓÐUR: Stendur augnablik, gefst up, gengur í burt...



HÉGÓMLEGUR: Heldur öllum 5 sentimetrunum eins og sleggjukrafti, reigir sig...

 

pissa

 

Sótt á vef vf.is


Snildar námskeið fyrir karlmenn

 

namskeid_karlmenn 

Tveggja daga námskeið er fyrirhugað fyrir karlmenn ef næg þátttaka fæst. Efni námskeiðsins er eftirfarandi:

HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT ?
Skref fyrir skref með glærusýningu.

KLÓSETTRÚLLUR: VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?

Hringborðsumræður.

MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel).

DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður; nokkrir sérfræðingar.

LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi -
Opin umræða.

TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir.

HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM
PowerPoint kynning.

SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar.

ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir.

AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA
Fyrirlestur og hlutverkaleikir.

HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni.

AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR
Komdu með dagatalið þitt í tímann.

AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR
Einstaklingsráðgjöf og samtöl.

 

 Efnið er  sótt á Vf vefin.


Mikið um veikindi..... hvaða pest er ekki í gangi?

Þetta er að verða þreytt sko, það er að verða bún vika 2 og ég hef ekki náð mér enþá.

Svo missir maður að síðustu dögum í vinnunni áður en Jórunn fer í frí og Magga hætti í dag. Ómissandi félagar í vinnunni. Best að vera bara lasin í mánuð í viðbót á meðan Jórunn er í fríi Devil

Vá hvað mér þykir mikill missi af henni Möggu, þetta var hennar síðasti dagur í vinnunni í dag hjá okkur í húsinu. Ég vona að hún komi til með að sakna okkar og koma bara aftur Halo

Það er fundur hjá FKA á morgun og viti menn ég held að ég mæti bara þangað loksins. En auðvitað ekki ein og óstudd, ég bjallaði í eina sem að ég bað um að taka mig með sér á fundinn.

OHHH... hvað ég myndi vilja vera í Kína hjá Ástu Rut , ég var að skoða myndir í dag með Jórunni og þetta er held ég bara einn af fáu stöðum sem mig langar virkilega til að fara á (þegar ég verð stór).Wink

Það er búið að vera rólegt í verslun síðustu daga en nóg að gera í markaðssettnigu hjá okkur. Vonandi fer að glæðast og maður að komast í frí og þá meina ég FRÍ W00t

Nóg í bili, best að æfa sig í Kínversku.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband